Afhverju þarf alltaf að gera fyrirsagnir >.

Maður er búinn að koma sér aðeins betur inn í vinnuna hérna en þó á ég enn í smá vandræðum með að muna nákvæmlega hvað átti að gera við öll skjölin sem koma hérna í gegn.

Núna er ég búinn að sitja hérna einn í tvo klukkutíma og ekkert búið að gerast (nema að auðvitað hringdi síminn meðan ég var á klóinu FootinMouth).

Það hefur nú svosem ekki mikið gerst síðan ég skrifaði síðast. Við erum enn að koma okkur fyrir (ég verð að fara að taka fötin upp úr ferðatöskunni Blush). Ég keypti jú reyndar loksins Gamecube fjarstýringu, svo ég get loksins spilað Metroid og Fire Emblem. Ég greip með nýja Mario fótboltaleikinn á Wii-ið og hann er að reynast vel.

Svo er ég að pæla í því að hjóla niður í Hafnarfjörðinn eftir vinnu og kíkja á frænda minn sem var að eignast barn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband